Þú kemur til okkar í Herragarðinn og sérfræðingar okkar taka mál og leggja ráð á efni, snið og lit - Allt eftir tilefni.
Eftir máltöku er komið að því að velja efni í sérsaumuðu fötin. Við bjóðum upp á mikið úrval af vönduðum efnum frá stærstu vefurum í heimi og möguleikarnir því nær endalausir.